Gagnrýni á “Við erum saman”
Upplýsingar um ritið: Við erum saman. Höfundar eru sjö norskir læknanemar. Þýðandi er Guðsteinn Þengilsson læknir. Iðunn, Reykjavík 1979.
Gagnrýni skrifuð af losti@islandia.is:
Bókin “Við erum saman” er núna illilega komin til ára sinna og er skrifuð í anda frjálsrar ásta hugsunar. Ég man lauslega eftir að hafa lesið hana sem táningur og sennilega sá ég ekki mikið að henni á þeim tíma.
Á bókarkápu eru þessi hugleiðingarorð frá höfundunum: “Það er mikilvægt að gera sér ljóst, hvernig athafnir okkar og reynsla (bæði pilta og stúlkna) eru undir því komin, hvernig skóli, kennarar, foreldrar og væntanlegir kynlífsnautar vilja að við séum.”
Síðan er eina BDSM umræðan í lok bókarinnar en þar er: “Listi yfir fræðiorð, sem þú kynnir að rekast á” (bls. 71) og þar er eftirfarandi:
- “Fetichismus (eroticus) sjúkleg hneigð einstaklings (oftast karlkyns) til að virða fyrir sér eða snerta einhvern sérstakan hluta af líkama hins kynsins eða hluta af klæðnaði og fá á þann veg fullnægt kynþörf sinni.” (bls. 71)
- “Masochismus, það að hafa lostakenda nautn af því að láta elskhuga sinn misþyrma sér.” (bls. 72)
- “Sadismus, kvalarlosti, misþyrmingarmunaður (karls – oftast – eða konu, sem hefur lostakennda nautn af að kvelja elskhuga sinn).” (bls. 72)
Út frá þessu er alveg ljóst að höfundarnir eru að reyna að móta lesendur í þeirri trú að það sé “sjúklegt” að hafa langanir sem þeir hafa ekki - þar sem það féll ekki inn í byltingarkenndan anda bókarinnar á þeim tíma sem hún var skrifuð.
Það er synd að þýðandi, sem einnig staðfærði bókina, sá ekki í gegnum þennan neikvæða áróður höfundanna. Og því miður hleður svona bull utan á sig og leiðir lesendur sem áhuga hafa á einhverju sem tengist þessum “fræðiorðum” inn í þá hugsun að hér sé um verulega afbrigðilegar langanir að ræða og best sé að loka þær algerlega af —- og síðan getur viðkomandi þjáðst ævilangt af því að geta ekki rætt langanir sínar og/eða upplifað þær með sínum lífsförunautum —- sem kannski eru að þjást af þeim sömu löngunum, eða í versta falli eru haldnir þeim fordómum að trúa að þetta sé “sjúkt”.
Gagnrýni þessi er skrifuð af losti@islandia.is þann 16. janúar 1998.