Safn frá mars, 2009

Kaffihúsahittingur (Munch)

Þriðjudagur, 31 mars, 2009

Kæru félagar, vandamenn og sampervertar

BDSM á Íslandi mun halda sitt reglulega munch fimmtudaginn 2. apríl næstkomandi.
Munchið hefst stundvíslega kl 20:00 og hvetjum við fólk til að mæta.

Munchið verður að þessu sinni haldið á annari hæð Tabasco’s við Ingólfstorg (við hliðina á Baltasar áður Café Victor),þar sem er fjölbreyttur matseðill fyrir lítinn pening.

Umræðuefni kvöldsins er: Frjálst sem tengist BDSM.

Endilega fjölmennum á Tabasco’s, borðum saman og eigum góða kvöldstund saman.

Einnig tökum við á móti greiðslu félagsgjalds fyrir 2009 sem er kr 1.500.
Nýjir félagar velkomnir.

Við verðum þarna í góðum hópi á efri hæðinni.

Með flengikveðjum
Stjórn BDSM á Íslandi

BDSM á Íslandi
Kennitala: 491199-2969
Veffang: http://www.bdsm.is
Netfang: b…@bdsm.is
Póstfang: PO Box 5068, 125 Reykjavík
Bankareikningur: Íslandsbanki 0515-26-004911

Yfirlit fundargerðar Stjórnar 2.mars 2009

Miðvikudagur, 11 mars, 2009

Yfirlit fundargerðar stjórnar BDSM á Íslandi

Haldinn í heimahúsi, Hafnarfirði. Mánudaginn 2.mars 2009

Fundur settur

Mættir: BellaMorte, Myrkraverk, Geir og Electra. Freki boðaði forföll.

Kosið í embætti.

Atriði sem ma. var rætt um:

Gjaldkera staðan. Að passa uppá kvittanir og að upphæðir stemmi.

Að nokkur kaffihús bjóða uppá fría fundaraðstöðu með því að keypt sé kaffi – staður fyrir Aðalfundi og námskeið oþh. Kostir og gallar ræddir.

Um að semja svokallaðar „ Umgengnisreglur“ gagnvart öðrum félögum/samtökum einnig hvernig skal svara pósti.

Rætt um mál sem hafa komið upp hjá fyrri stjórn, en vantar allar fundargerðir af þessum málum svo erfitt er að álykta um þau. Það verður að passa uppá að gera fundargerðir í framtíðinni.

Rætt um Freakout og Gay Pride

Rætt um að endurbæta síðu bdsm.is.

Backup af síðunni og hvar það sé geymt.

Einnig að gera Wiki síðu þar sem fræðsla er í fyrirrúmi

Rætt um að breyta aðeins nafninu Munch. þe. Að hafa það „Kaffihúsahittingur og (Munch) í sviga. Einnig rætt um að kynna betur: Hvað þýðir Munch, hvað er gert þar, klæðnaður, nafnleynd oþh. Á síðunni og á póstlista. (Beiðni frá félaga af sl. Aðalfundi)

Rætt var um að endurskoða lögin og uppfæra þagnarskyldu og trúnaðinn.

Rætt hvernig pers.uppl eru notaðar

Rætt um Pósthólfið ma. að það hefur hækkað pr. mánuð.

Rætt um að ekki hefði verið rétt að neita félaga um auka aðalfund.

Fundarslit

Ný stjórn BDSM á Íslandi.

Föstudagur, 6 mars, 2009

Aðalfundur  BDSM á Íslandi fimmtudaginn 19. febrúar 2009 s.l.

var kosin ný stjórn og er hún skipuð eftirtöldum:

BellaMorte:Ritari

Myrkraverk: Formaður

Geir: Tengiliður Fræðslu

Electra gjaldkeri

Freki Tengiliður kaffihúsahittings (Munch).

Ef þið eruð með einhver erindi til okkar - sendið þau endilega á: bdsm@bdsm.is