Yfirlit fundargerðar Stjórnar 2.mars 2009
Yfirlit fundargerðar stjórnar BDSM á Íslandi
Haldinn í heimahúsi, Hafnarfirði. Mánudaginn 2.mars 2009
Fundur settur
Mættir: BellaMorte, Myrkraverk, Geir og Electra. Freki boðaði forföll.
Kosið í embætti.
Atriði sem ma. var rætt um:
Gjaldkera staðan. Að passa uppá kvittanir og að upphæðir stemmi.
Að nokkur kaffihús bjóða uppá fría fundaraðstöðu með því að keypt sé kaffi – staður fyrir Aðalfundi og námskeið oþh. Kostir og gallar ræddir.
Um að semja svokallaðar „ Umgengnisreglur“ gagnvart öðrum félögum/samtökum einnig hvernig skal svara pósti.
Rætt um mál sem hafa komið upp hjá fyrri stjórn, en vantar allar fundargerðir af þessum málum svo erfitt er að álykta um þau. Það verður að passa uppá að gera fundargerðir í framtíðinni.
Rætt um Freakout og Gay Pride
Rætt um að endurbæta síðu bdsm.is.
Backup af síðunni og hvar það sé geymt.
Einnig að gera Wiki síðu þar sem fræðsla er í fyrirrúmi
Rætt um að breyta aðeins nafninu Munch. þe. Að hafa það „Kaffihúsahittingur og (Munch) í sviga. Einnig rætt um að kynna betur: Hvað þýðir Munch, hvað er gert þar, klæðnaður, nafnleynd oþh. Á síðunni og á póstlista. (Beiðni frá félaga af sl. Aðalfundi)
Rætt var um að endurskoða lögin og uppfæra þagnarskyldu og trúnaðinn.
Rætt hvernig pers.uppl eru notaðar
Rætt um Pósthólfið ma. að það hefur hækkað pr. mánuð.
Rætt um að ekki hefði verið rétt að neita félaga um auka aðalfund.
Fundarslit
mars 25th, 2009 at 1:17 e.h.
Vegna bókuna núverandi stjórnar BDSM á Íslandi um að rangt hafi verið af fyrri stjórn að neita einum meðlima BDSM á Íslandi um að halda aukaaðalfund vil ég koma fram sjónarmiðum fyrri stjórnar og því að meðlimir fyrri stjórnar hafi ekki brotið á rétti þessa umrædda félagsmans.
Hér er 8. gr laganna sem fjallar um hvernig skuli staðið að því að biðja um aukaaðalfund.
8. gr.
Sérhver skuldlaus félagsmaður getur krafist þess skriflega til stjórnar félagsins, að hún boði til aukaaðalfundar. Stjórnin getur einnig boðað til aukaaðalfundar. Í skriflegri kröfu um aukaaðalfund skal tilgreina hvaða efni skuli taka á dagskrá. Stjórn skal halda aukaaðalfund innan tveggja mánaða frá því að krafa um aukaaðalfund var lögð fram og auglýsa hann skriflega og/eða með tölvupósti tveimur vikum fyrir fundinn. Rétt til setu og þátttöku í umræðum á aukaaðalfundi hafa allir skráðir félagsmenn, en atkvæðisrétt hafa eingöngu skuldlausir félagsmenn. Aukaaðalfundur getur samþykkt með einföldum meirihluta að boða til aðalfundar.9. gr.Aðalfundur hefur rétt til að leggja félagið niður. Sjóðir eða eignir félagsins munu við slit félagsins renna til annarra formlegra félaga eða hópa sem stunda almenna kynfræðslu, BDSM fræðslu eða til góðgerðarstarfssemi.
Hér er þessu málsgrein sem við vildum að umræddur félagsmaður uppfyllti áður en við myndum halda aukaaðalfund. Hér á eftir koma samskipti okkar við hann og eins og glöggt kemur í ljós var hann beðinn um að verða við þessum upplýsingum og þá myndum við halda aukaaðalfund. Það sem hins vegar gerist er að hann verður ekki við þeirri beiðni heldur fer á spjallvef og hringir í einn aðila sem er núna í stjórn BDSM á Íslandi og segir að sér hafi verið neitað um að haldinn yrði aukaaðalfundur. Hér á eftir kemur afrit af þessum samskiptum sem meðal annars eru til í pósthólfi bdsm@bdsm.is.
_____________________________________________________________
Góðan dag
í ljósi málefna undanfarinna daga þá óska ég eftir því að stjórn BDSM á Íslandi kalli til aukaaðalfundar með lögbundnum hætti.
Efni: Tengsl BDSM á Íslandi við önnur félög og önnur mál.
kv
xxxxx
________________________________________________________________
Sæll
Það þarf að vera alveg skírt hvað verður tekið fyrir á fundinum og nákvæmlega þú sérð falla undir þann lið sem þú kallar önnur mál. Einungis þau mál sem beðið er um umfjöllun á þessu aukaaðalfundi verða tekin fyrir og ekkert utan þess.
Kveðja,
Stjórn BDSM á Íslandi
_______________________________________________________________
hæ
Ég hefði haldi að almenn fundarsköp giltu um aðalfundi sem og aukaaðalfundi.
kv
xxxxx
______________________________________________________________
Sæll
Það þarf að vera alveg skírt hvað verður tekið fyrir á fundinum og nákvæmlega þú sérð falla undir þann lið sem þú kallar önnur mál. Einungis þau mál sem beðið er um umfjöllun á þessu aukaaðalfundi verða tekin fyrir og ekkert utan þess.
Kveðja,
Stjórn BDSM á Íslandi
________________________________________________________________
Sæll
Bara til að árétta fyrri ósk um nánari skilgreiningu um önnur mál ef það á að halda þennan aukaaðalfund. Einnig þarf að koma fram hvaða félög á að ræða um samstarf við og ástæður. Ekki er nægjanlegt að okkar mati að einungis verði rætt almennt um félög. Einnig að okkar mati þurfa félög sem rætt er um að vera lögformlega stofnuð annars falla þau ekki undir skilgreiningu sem félag.
Við munum ekki kalla til aukaaðalfundar um þessi málefni nema að þessum skilyrðum sé fullnægt, með vísan í 8g gr. laga BDSM á Íslandi.
Kveðja,
Stjórn BDSM á Íslandi
________________________________________________________________
Eins og greinilega kemur fram var þessum félagsmanni aldrei neitað um að haldin yrði aukaaðalfundur.
Áður nefndur stjórnarmaður BDSM á Íslandi lagði þá túlkun fyrir síðasta aðalfund að hversu lítilfjörlegt sem málefnið væri þá bæri að boða til aukaaðalfundar ef félagsmaður óskaði. Það var ekki vandamálið hér heldur að ekki var skilgreint hvað ætti að fjalla um á þessum aukaaðalfundi á nægjanlega skýran hátt.
Einnig stangast þessi túlkun þessa stjórnarmanns á við túlkun á þessari grein sem hann sendi skriflega á nokkra aðila fyrri stjórnar fyrir um tveimur árum síðan sem var eftirfarandi.
“Ákvæðið um aukaaðalfund var sett inn í lögin á sínum tíma, ef sú staða skyldi koma upp að það væri ný kosin stjórn sem síðan sinnir ekki starfi sínu og það eru farin að líða fleiri en 2 ár á milli aðalfunda. Þá á þessi lagagrein um aukaaðalfund að tryggja að félagsmenn (einn eða fleiri) geti krafist þess að haldin sé aukaaðalfundur og þannig þvingað óvirka stjórn til starfa. Ef veruleg óáægja er með stjórnina, þá á svona auka-aðalfundur að getað samþykkt með meirihluta fundarmanna að boðað sé til aðalfundar sem fyrst, þar sem ný stjórn er kosin.”
Þessi túlkun hans á 8. greininni er þarna mun þrengri en sú túlkun sem við höfðum að leiðarljósi þegar við báðum umræddan félagsmann um að skilgreina betur hvað ætti að fjalla um á þessum aukaaðalfundi áður en við myndum boða til hans.
Niðurtaðan af þessu er að við fyrri stjórn fórum í einu og öllu eftir lögum félagsins. Við neituðum umræddum félagsmanni aldrei um að halda aukaaðalfund. Umræddur félagsmaður nýtti sér ekki það að endurskrifa beiðnina og fá þannig haldin aukaaðalfund eins og lög félagsins gefa honum rétt á og þá þó að við sendum ítrekun á hann um að hann skildi gera svo ef hann vildi fá þennan aukaaðalfund haldin.
Af þessum orðum skrifuðum fer ég her með fram á að núverandi stjórn BDSM á Íslandi endurskoði þá bókun sína að við höfum brotið á rétti félagsmanna og birti afsökunarbeiðni til handa fyrri stjórnar vegna þessa frumhlaups síns.
Með vegsemd og virðingu
Einherji
apríl 26th, 2009 at 10:32 e.h.
Takk fyrir ummæli þín. Ég legg til að þú sendir póst á bdsm@bdsm.is svo að við getum tekið þetta fyrir á næsta stjórnarfundi.
Fh, Stjórnar,
BellaMorte
maí 5th, 2009 at 11:49 f.h.
Ég ætla ekkert að senda inn neina beiðni. Þið fjölluðuð um þetta áður á stjórnarfundi án þess að neinn bæði um það og ættuð alveg að geta fjallað um það aftur á einhverrar sérstakrar beiðni.