Safn frá maí, 2009

Afslættir

Fimmtudagur, 28 maí, 2009

Meyland

Þú skráir þig sem notanda á meyland.is og sendir þeim svo upplýsingar um nikkið þitt og email sem er á bdsm.is. Þá fer þú í sérstakan notanda hóp sem fær 5% afslátt.

Athugið að afslátturinn virkar ekki um leið og þú skráir þig, Svo færðu póst þegar afslátturinn hefur verið virkjaður Afslátturinn sést svo þegar þú kíkir í körfuna.


Amor

Amor.is http://www.amor.is/

Amor veita 10% afslátt af öllum vörum í verslunum þeirra við Skúlagötu 40A í Reykjavík og á Dalvegi 16A í Kópavogi.


Hókus Pókus

Hókus Pókus http://www.hokuspokus.is/

Hókus Pókus veitir 15% afslátt af öllum vörum í verslun þeirra við Laugarveg 69.


Og fleiri búðir væntanlegar.

Kveðja,

Stjórn BDSM á Íslandi

Sértilboð til félaga

Fimmtudagur, 28 maí, 2009

Kæru Félagar.

Nú hefur félagsmönnum verið boðið að nýta einstakt tækifær að kaupa sér Strapon harness í gegnum Meyland.is

Harnessin eru frá Aslan leather sem er kanadískur framleiðandi sem t.d. Stockroom fær margar af sínum vörum frá. Vörurnar eru með þeim vinsælustu á markaðinum, mjög falleg og mikil gæði.

Þetta er sértilboð til félaga og eru þessar vörur ekki seldar í búðinni.

Þú skráir þig sem notanda á meyland.is og sendir þeim svo upplýsingar um nikkið þitt og email sem er á bdsm.is. Svo pantar þú vöruna.

Þú ferð svo í sérstaka notanda hóp sem fær 5% afslátt.

Athugið að afslátturinn virkar ekki um leið og þú skráir þig, Svo færðu póst þegar afslátturinn hefur verið virkjaður Afslátturinn sést svo þegar þú kíkir í körfuna.

Hérna er linkur Aslan leather : http://www.aslanleather.com/

Sendið póst á bdsm@bdsm.is með yfirskriftinni „Sértilboð“ ef einhverjar spurningar eru fyrir hendi.

Kveðja,

Stjórn BDSM á Íslandi

Yfirlit fundargerðar stjórnar 5 maí 2009

Föstudagur, 22 maí, 2009

Haldinn í heimahúsi, Hafnarfirði. Þriðjudaginn 5.maí 2009

Fundur settur kl. 21

Mættir:  BellaMorte, Geir og Myrkraverk.

Atriði sem var m.a. rætt um:

Afslættir og drífa í að auglýsa og virkja alla í að borga árgjaldið.

Jafnvel Partý fyrir greidda félaga.

Póstlistinn – Forritið og Skírteinin – Forritið

Svör - Hringt í fyrv. stjórnarmeðlim á staðnum og hann sagðist ætla að senda á bdsm pósthólfið líka í samb við skírteinin.

Enn ekkert hefur komið frá honum eins og var lofað.

Munch –Alltaf haldið 1sta fim og 3ja þriðjudag í mánuð.

Tillögur til bættra laga – Stjórn

Fundargerðir í bókinni – Setja á rafrænt form.

Ungliða hreyfing -  Fræðsla

Sameiginlegt námskeið Hafa þannig að utanfélagsmenn gr. 500-1000 kr. frítt f. Gr félaga.

Wiki síða –Með fræðslu. Setja saman nefnd jafnvel.

Staða nýs tengils Kaffihúsahittings (Munch)

Endurskoða lögin og uppfæra  þagnarskyldu og trúnaðinn.

Hvernig  pers.uppl eru notaðar núna – Netfangið er það sem gildir en einnig eru skráð nikkin ef fólk vill.

Fundarslit kl. 23:50

Afsláttarkjör

Föstudagur, 22 maí, 2009

Kæru félagar.

Nú erum við búin að landa afsláttarsamningum við nokkur fyrirtæki fyrir okkar félagsmenn og eru fleiri væntanleg. Og munu þau verða kynnt ítarlega á næstu vikum.

Það er algjör nauðsyn fyrir félagsmenn að sýna gilt skírteini við kaup á vörunum til að fá afsláttinn. Það eru engar undantekningar frá þeirri reglu.

Félagsskírteini BDSM á Íslandi fyrir árið 2009 er gult að lit og eru þau sú einu sem eru gild. Skírteinin frá því í fyrra (bláu skírteinin) eru dottin úr gildi og fá ný þeir sem greiddu félagsgjald í lok árs fá send ný með gildandi dagsetningu. Þeir sem ekki hafa endurskráð sig í félagið á þessu ári og borgað félagsgjöldin geta ekki nýtt sér þessa afslætti.

Og biðjum við alla félagsmenn að hugsa vel um skírteinin sín.


Þeir sem ekki hafa fengið sín skírteini í hendur eru beðnir um að hafa samband við
bdsm@bdsm.is svo hægt sé að koma skírteinunum til síns heima.

Þeir einstaklingar sem ekki eru orðnir félagsmenn en vilja nýta sér afsláttartilboðin geta skráð sig í félagið. Enn sem fyrr þá verður að bíða eftir að skírteinið er komið í hönd til að geta nýtt sér kosti þess. Sá tími er hins vegar stuttur og því margborgar það sig að gerast félagi.

BDSM á Íslandi
Kennitala: 491199-2969
Veffang: bdsm.is
Netfang: bdsm@bdsm.is
Póstfang: PO Box 5068, 125 Reykjavík
Bankareikningur: Íslandsbanki 0515-26-004911
Verð: 1.500 kr.

Kaffihúsahittingur (Munch) 19. maí

Sunnudagur, 17 maí, 2009

Kæru félagar, vandamenn og sampervertar

BDSM á Íslandi mun halda sitt reglulega munch þriðjudaginn 19. maí næstkomandi.
Munchið hefst stundvíslega kl 20:00 og hvetjum við fólk til að mæta.

Munchið verður að þessu sinni haldið á annari hæð Tabasco’s við Ingólfstorg (við hliðina á Baltasar áður Café Victor),þar sem er fjölbreyttur matseðill fyrir lítinn pening.

Umræðuefni kvöldsins er: Frjálst sem tengist BDSM.

Endilega fjölmennum á Tabasco’s, borðum saman og eigum góða kvöldstund saman.

Einnig tökum við á móti greiðslu félagsgjalds fyrir 2009 sem er kr 1.500.
Nýjir félagar velkomnir.

Við verðum þarna í góðum hópi á efri hæðinni.

Með flengikveðjum
Stjórn BDSM á Íslandi

BDSM á Íslandi
Kennitala: 491199-2969
Veffang: http://www.bdsm.is
Netfang: bdsm@bdsm.is
Póstfang: PO Box 5068, 125 Reykjavík
Bankareikningur: Íslandsbanki 0515-26-004911

Kaffihúsahittingur (Munch) 7. maí

Miðvikudagur, 6 maí, 2009

Kæru félagar, vandamenn og sampervertar

BDSM á Íslandi mun halda sitt reglulega munch fimmtudaginn 7. maí næstkomandi.
Munchið hefst stundvíslega kl 20:00 og hvetjum við fólk til að mæta.

Munchið verður að þessu sinni haldið á annari hæð Tabasco’s við Ingólfstorg (við hliðina á Baltasar áður Café Victor),þar sem er fjölbreyttur matseðill fyrir lítinn pening.

Umræðuefni kvöldsins er: Frjálst sem tengist BDSM.

Endilega fjölmennum á Tabasco’s, borðum saman og eigum góða kvöldstund saman.

Einnig tökum við á móti greiðslu félagsgjalds fyrir 2009 sem er kr 1.500.
Nýjir félagar velkomnir.

Við verðum þarna í góðum hópi á efri hæðinni.

Með flengikveðjum
Stjórn BDSM á Íslandi

BDSM á Íslandi
Kennitala: 491199-2969
Veffang: http://www.bdsm.is
Netfang: bdsm@bdsm.is
Póstfang: PO Box 5068, 125 Reykjavík
Bankareikningur: Íslandsbanki 0515-26-004911