Afsláttarkjör

Kæru félagar.

Nú erum við búin að landa afsláttarsamningum við nokkur fyrirtæki fyrir okkar félagsmenn og eru fleiri væntanleg. Og munu þau verða kynnt ítarlega á næstu vikum.

Það er algjör nauðsyn fyrir félagsmenn að sýna gilt skírteini við kaup á vörunum til að fá afsláttinn. Það eru engar undantekningar frá þeirri reglu.

Félagsskírteini BDSM á Íslandi fyrir árið 2009 er gult að lit og eru þau sú einu sem eru gild. Skírteinin frá því í fyrra (bláu skírteinin) eru dottin úr gildi og fá ný þeir sem greiddu félagsgjald í lok árs fá send ný með gildandi dagsetningu. Þeir sem ekki hafa endurskráð sig í félagið á þessu ári og borgað félagsgjöldin geta ekki nýtt sér þessa afslætti.

Og biðjum við alla félagsmenn að hugsa vel um skírteinin sín.


Þeir sem ekki hafa fengið sín skírteini í hendur eru beðnir um að hafa samband við
bdsm@bdsm.is svo hægt sé að koma skírteinunum til síns heima.

Þeir einstaklingar sem ekki eru orðnir félagsmenn en vilja nýta sér afsláttartilboðin geta skráð sig í félagið. Enn sem fyrr þá verður að bíða eftir að skírteinið er komið í hönd til að geta nýtt sér kosti þess. Sá tími er hins vegar stuttur og því margborgar það sig að gerast félagi.

BDSM á Íslandi
Kennitala: 491199-2969
Veffang: bdsm.is
Netfang: bdsm@bdsm.is
Póstfang: PO Box 5068, 125 Reykjavík
Bankareikningur: Íslandsbanki 0515-26-004911
Verð: 1.500 kr.



Skrá ummæli