BDSM Kaffihúsakvöld (Munch) fimmtudaginn 1. október

BDSM á Íslandi mun halda sitt reglulega kaffihúsakvöld (munch)
fimmtudaginn 1. október næstkomandi.
Í leiðinnii viljum við minna á að við hittumst þar á eftir
þriðjudaginn 20. október, á sama stað og sama tíma.

Hittingurinn hefst kl 20 og stendur til um kl 22. Allir eru
hjartanlega velkomnir.

Við verðum á veitingastaðnum Tabasco’s við Ingólfstorg (
http://www.tabascos.is/ ), þar sem er fjölbreyttur matseðill fyrir
lítinn pening. Við verðum á efri hæðinni og hægt er að spyrja um
S-hópinn.

Allt sem sagt er á fundinum er trúnaðarmál þeirra sem saman eru
komnir. Full nafnleynd ef þú kýst svo, og þá getur þú notað gælunafn,
eða nikk. Hversdags klæðnaður gildir.

Umræðuefni kvöldsins verður meðal annars sumarbústaðarferðin, sem
haldin var 18. til 20. september.

Endilega fjölmennum á Tabasco’s, borðum saman og eigum góða kvöldstund.
Einnig tökum við á móti greiðslu félagsgjalds fyrir 2009 sem er kr
1.500. Nýir félagar velkomnir.

Kær kveðja
Stjórn BDSM á Íslandi



Skrá ummæli