Kaffihúsakvöld fimmtudaginn 7. janúnar kl 20
BDSM á Íslandi mun halda sitt reglulega kaffihúsakvöld (munch)
fimmtudaginn 7. janúar næstkomandi.
Í leiðinni viljum við einnig minna á að þriðjudaginn 19. jan. verður
einnig kaffihúsakvöld og þá höldum við upp á 12 ára afmæli félagins.
Þessi fyrsti hittingur ársins hefst kl 20 og stendur til um kl 22.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Við verðum á veitingastaðnum Tabasco’s við Ingólfstorg
( http://www.tabascos.is/ ), þar sem er fjölbreyttur matseðill fyrir
lítinn pening. Við verðum á efri hæðinni og hægt er að spyrja um
S-hópinn.
Allt sem sagt er á fundinum er trúnaðarmál þeirra sem saman eru
komnir. Full nafnleynd ef þú kýst svo, og þá getur þú notað gælunafn,
eða nikk. Hversdags klæðnaður gildir.
Umræðuefni kvöldsins verður starfið á nýju ári og væntanleg námskeið 14. jan og síðar.
Endilega fjölmennum á Tabasco’s, borðum saman og eigum góða kvöldstund saman.
Kær kveðja
Stjórn BDSM á Íslandi