Námskeið í erótískum flengingum og hýðingum fyrir karlmenn
Fimmtudaginn 28. janúar kl. 19:30 verður kvöldnámskeið í erótískum flengingum og hýðingum.
Þetta námskeið er eingöngu fyrir karlmenn (óháð kynhneigð), en fljótlega verður haldið samskonar námskeið fyrir bæði kyn og verður það auglýst síðar.
- Farið verður yfir öryggi, tilfinningar og líkamleg atriði,
- Aðferðir og leiktæki kynnt
- Sýnikennsla á fyrirsætu
- Spurningar og umræður á eftir
Námskeiðið er hugsað fyrir bæði drottnara og (ekki síst) undirgefna, sem og alla áhugsama.
Leiðbeinandi er sadomaso
Námskeiðið er frítt fyrir þá félagsmenn í BDSM á Íslandi og MSC sem hafa greitt félagsgjald á árinu 2009, en aðrir þurfa að greiða kr. 1.000 við innganginn.
Til að skrá sig á námskeiðið og fá nánari upplýsingar þarf að senda tölvupóst á BDSM á Íslandi: bdsm@bdsm.is, eða hafa samband við MSC: msc@msc.is , sími 893 9552
BDSM á Íslandi í samvinnu við MSC