Safn flokksins ‘Uncategorized’

Námskeiðið 14. janúar fellur niður

Miðvikudagur, 13 janúar, 2010

Vegna óvæntra forfalla kennara fellur námskeiðið sem átti að halda 14. janúar niður.

Kaffihúsakvöld fimmtudaginn 7. janúnar kl 20

Miðvikudagur, 6 janúar, 2010

BDSM á Íslandi mun halda sitt reglulega kaffihúsakvöld (munch)
fimmtudaginn 7. janúar næstkomandi.
Í leiðinni viljum við einnig minna á að þriðjudaginn 19. jan. verður
einnig kaffihúsakvöld og þá höldum við upp á 12 ára afmæli félagins.

Þessi fyrsti hittingur ársins hefst kl 20 og stendur til um kl 22.
Allir eru hjartanlega velkomnir.

Við verðum á veitingastaðnum Tabasco’s við Ingólfstorg
( http://www.tabascos.is/ ), þar sem er fjölbreyttur matseðill fyrir
lítinn pening. Við verðum á efri hæðinni og hægt er að spyrja um
S-hópinn.

Allt sem sagt er á fundinum er trúnaðarmál þeirra sem saman eru
komnir. Full nafnleynd ef þú kýst svo, og þá getur þú notað gælunafn,
eða nikk. Hversdags klæðnaður gildir.

Umræðuefni kvöldsins verður starfið á nýju ári og væntanleg námskeið 14. jan og síðar.

Endilega fjölmennum á Tabasco’s, borðum saman og eigum góða kvöldstund saman.

Kær kveðja
Stjórn BDSM á Íslandi