Umræðutorg BDSM á Íslandi » Spurningar og svör

Næsti aðalfundur

(1 post)
  • Started 1 year ago by BellaMorte

  1. Hvenær er næsti aðalfundur?

    Vil taka þetta upp þar.
    Ég sem félagsmaður vil taka mál upp á aðalfundi BDSM á Íslandi hvernig yfirlýsingaum og tengsl við önnur félög og samtök sé háttað.

    Rök:

    BDSM sem ber ekki neina lögsögu á spjallsvæði fetishiceland.com sendir opinbert bréf varðandi ákvörðunar félags innan síðunnar sinnar.

    Ég er ósátt við að félagið noti nafn sitt opinberlega á þennan hátt.
    Engar reglur voru brotnar – því fetishiceland.com er þeirra mál og hlýtur ekki reglum BDSM félagsins – né kemur BDSM á Íslandi við.

    Og ætti félagið því ekki að blanda sér inní deilumál annarra aðila.

    **
    Opinbert bréf BDSM á Íslandi varðandi málefni UFSM
    Stjórn BDSM á Íslandi harmar þá stefnu UFSM að útiloka ákveðinn aðila frá sínum viðburðum án haldbærs rökstuðnings.

    Stjórn BDSM á Íslandi telur að umburðarlyndi sé grundvöllur þess samfélags sem við BDSM og fetishiðkendur stundum. BDSM á Íslandi hefur ætíð haft þá skýru stefnu að allir á löglegum aldri séu velkomnir burtséð frá kyni, kynhneigð, útliti, þjóðfélagsstétt o.s.frv. Hvers kyns mismunun mun því aldrei vera liðin af okkar hálfu.

    Sá aðili sem um ræðir hefur verið virkur meðlimur BDSM á Íslandi um árabil við gott orð í hvívetna. Aldrei hefur borist kvörtun um hann til stjórnarinnar heldur þvert á móti hefur hans nærveru á viðburðum félagsins verið sérstaklega óskað sökum hans drífandi og skemmtilega persónuleika.

    Stjórn BDSM á Íslandi hefur samróma tekið þá ákvörðun að á meðan stefna UFSM í þessum málum er óbreytt munum við ekki leyfa UFSM að nota okkar vettvangi (munch, irc-rás, heimasíðu og aðra viðburði) til að auglýsa sína viðburði.

    Við vonum að stjórn UFSM endurskoði sína afstöðu og beiti sér fyrir því að bæta þessum einstaklingi upp þessa leiðu hegðun.

    Við hvetjum einnig félagsmenn og aðra til að taka afdráttarlausa afstöðu gegn mismunun, í hvaða mynd sem hún birtist.

    Með vegsemd og virðingu
    Stjórn BDSM á Íslandi.

    Posted 1 year ago #

RSS feed for this topic

Reply

You must log in to post.