Aðalreglur
Tilgangur BDSM-, sadómasókisma-, munalosta-, valda- og skynjunarbreytileika er munaður allra þátttakendanna. BDSM-, sadómasókisma-, munalosta-, valdaskipta- og skynjunarbreytingaleikir sem BDSM á Íslandi stendur fyrir og styður verða að uppfylla þrjú megin atriði. Leikurinn verður að vera: Öruggur, meðvitaður og samþykktur.
Öryggi. Allir BDSM leikir eiga að auka munað þátttakendanna og því er mikilvægt að fyllsta öryggis sé gætt til að koma í veg fyrir andlegt eða líkamlegt tjón.
Meðvitund. Allir aðilar verða að gera sér grein fyrir því hvað þeir eru að gera og að tilgangurinn er aukinn munaður.
Samþykki. Allir aðilar að leiknum verða að vera samþykkir því sem fram fer.
Umgengnisreglur
-
Allar aðalreglur BDSM á Íslandi gilda.
Tilgangur BDSM-, sadómasókisma-, munalosta-, valda- og skynjunarbreytileikja er munaður allra þátttakendanna. BDSM-, sadómasókisma-, munalosta-, valdaskipta- og skynjunarbreytingaleikir sem BDSM á Íslandi stendur fyrir og styður verða að uppfylla þrjú megin atriði.
Öruggur. Allir BDSM leikir eiga að auka munað þátttakendanna og því er mikilvægt að fyllsta öryggis sé gætt til að koma í veg fyrir andlegt eða líkamlegt tjón.
Meðvitaður. Allir aðilar verða að gera sér grein fyrir því hvað þeir eru að gera og að tilgangurinn er aukinn munaður.
Samþykktur. Allir aðilar að leiknum verða að vera samþykkir því sem fram fer.
Undir engum kringumstæðum getur BDSM á Íslandi samþykkt eða liðið á einn eða annan máta: 1. Barnaklám eða kynlíf sem tengist börnum undir sjálfræðisaldri. 2. Dýraklám eða kynlíf sem tengist dýrum. 3. Nauðganir. 4. Heimilisofbeldi. -
Umgangist alla með virðingu, af tilliti og af nærgætni. Kynnist öðru fólki alveg eins og á öðrum opinberum stöðum.
-
Margir nota einungis fornafn eða dulnefni á samkomum BDSM á Íslandi. Félagið styður nafnleynd þeirra aðila. Þegar þið ávarpið aðra, notið þá einungis það nafn sem viðkomandi notar á samkomum félagsins, jafnvel þótt þú þekkir fullt nafn viðkomandi.
-
Ef þú hittir einhvern á almenningsfæri sem þú þekkir frá samkomum félagsins verður þú að fara mjög varlega í að tala við viðkomandi á þeim stað. Viðkomandi gæti verið með aðilum sem ekki þekkja til bdsm áhuga viðkomandi og eiga ekki að þekkja til hans. Virðið það ef viðkomandi vill ekki þekkja eða virða þig viðlits á þeim stað.
-
Aldrei snerta neinn, eða tækjabúnað viðkomandi aðila, án leyfis.
-
Það er óleyfilegt að falast eftir kynferðissambandi gegn greiðslu.
-
Notkun ólöglegra vímuefna er bönnuð. Notið önnur vímuefni í hófi. Ef einhver verður ofurölvi verður viðkomandi beðinn um að fara.
-
Það er velkomið að stunda bdsm leiki í samkvæmum.
-
Ekki safnast saman í kringum þá sem stunda slíka leiki. Viðkomandi aðilar þurfa ákveðið pláss til að líða vel. Það er bannað að trufla leik viðkomandi, þar á meðal með því að tala við þá á meðan á leik stendur.
-
Stjórnarmeðlimir BDSM á Íslandi munu stöðva leik sem lítur út fyrir að vera óþarflega hættulegur.
-
Stjórnarmeðlimir BDSM á Íslandi hafa fullt vald til að biðja þá sem brjóta þessar reglur um að yfirgefa staðinn.
-
Notaðu almenna dómgreind.
-
Notkun myndavéla eða annars upptökubúnaðar er bönnuð.
-
Skemmtu þér vel