Lög
Lög BDSM á Íslandi
1. gr.
Félagið heitir BDSM á Íslandi og er áhugamannafélag. BDSM er samheiti fyrir bindi-, drottnunar- og sadómasókistaleiki og munalosta. Aðsetur félagsins er í Reykjavík, en starfsvið þess er Ísland. Félagið gerir ekki greinarmun á einstaklingum eftir þjóðerni þeirra, kynþætti, kyni, kynhneigð, kynhvötum, trú, starfsstétt, þjóðfélagshópi eða stjórnmálaskoðunum, og er opið öllum sem virða 2. gr. þessara laga.
2. gr.
Allir BDSM leikir eiga að auka munað þátttakendanna. Hverskyns bindi-, valda- eða munalostaleikir sem fallið geta undir BDSM þurfa að uppfylla þrjú megin skilyrði til þess að kallast BDSM og vera studdir af BDSM á Íslandi: Öruggt, meðvitað og samþykkt. Með félagsaðild sinn að BDSM á Íslandi skuldbindur félagi sig til að fara ætíð að þessum megin skilyrðum:
Öryggi: Allir BDSM leikir þurfa að vera öruggir þannig að ekki verði varanleganlegt eða langvarandi líkamlegt eða andlegt tjón.
Meðvitund: Allir þátttakendur verða að vera meðvitaðir og gera sér grein fyrir því hvað þeir eru að gera.
Samþykki: Allir aðilar leiksins verða að vera samþykkir því sem þar fer fram.
Kynlíf, kynhvatir eða kynhneigð sérhvers einstaklings er einkamál viðkomandi. Með þátttöku í starfi félagsins skuldbindur viðkomandi sig til að sýna algjöran trúnað og þagnarskyldu gagnvart félögum og utanaðkomandi aðilum, hvað varðar upplýsingar um kynlíf, kynhvatir, kynhneigð annarra félagsmanna, eða þátttöku þeirra í BDSM á Íslandi. Sömuleiðis skuldbindur félagið sig til algjörrar nafnleyndar um félaga eða einstaklinga sem leita til félagsins. Félaginu er einnig óheimilt að halda skrá yfir félagsmenn eða fólk sem leitar til félagsins, sem hægt er að tengja öðrum skrám, án dómsúrskurðar.
3. gr.
BDSM á Íslandi er stuðnings- og fræðslufélag fólks sem hefur áhuga á BDSM og sadómasókisma í sinni víðustu skilgreiningu, kynferðislegum munalosta og annars óhefðbundins kynlífs.Markmið félagsins eru:Stuðningur:
- Styðja einstaklinga og pör í vali sínu á kynlífsstíl og stuðla að því að fólk geti stundað öruggt kynlíf á heilbrigðan hátt.
- Sýna einstaklingum að þeir eru ekki einir um langanir sínar og þurfi ekki að skammast sín fyrir áhuga á BDSM.
- Hjálpa einstaklingum sem hafa áhuga á öruggu, meðvituðu og samþykktu BDSM að tala um þær langanir sínar við elskhuga sína.
- Auðvelda fólki með BDSM langanir að kynnst og ræða sín á milli.
Fræðsla:
- Kenna tækni og öryggisráðstafanir (líkamlegar og andlegar) við BDSM og almennar umgengisreglur eins og þær tengjast BDSM.
- Styðja alla fræðslu um kynlíf og kynlífsmálefni.
- Uppfræða einstaklinga og standa vörð um lagalegan rétt þeirra til að stunda BDSM.
- Leiðrétta ranghugmyndir og fordóma hjá einstaklingum og í þjóðfélaginu gagnvart BDSM.
- Fræða fólk um muninn á ofbeldi og öruggum, meðvituðum og samþykktum BDSM leik.
Til að ná markmiðum félagsins getur starfsemi þess byggst á eftirfarandi þáttum:
- Kynningar- og fræðslufundum um BDSM.
- Námskeiðum í BDSM eða hlutum tengdum þeim.
- Útgáfa kynningarefnis um BDSM og/eða rekstur vefsíðu um BDSM.
- Að halda úti vettvangi þar sem fólk getur spurt og svarað málefnum er varða BDSM.
- Samkvæmum eða fundum þar sem fólk með BDSM áhuga, gefst tækifæri til að kynnast.
- Reksturs einkamálaauglýsinga fyrir félagsmenn.
- Að veita upplýsingar um sérfræðinga á ýmsum sviðum sem geta veitt BDSM fólki aðstoð.
- Að veita stjórnvöldum, kennurum, fjölmiðlum og almenningi upplýsingar um BDSM.
- Að koma fram opinberlega fyrir hönd BDSM fólks og standa vörð um stöðu og rétt þeirra í þjóðfélaginu.
4. gr.
Félagsárið samsvarar almanaksári. Aðalfund hvers árs skal halda milli 31. desember þess árs og fyrsta 1. næsta árs. Rétt til fundarsetu og atkvæðaréttar á aðalfundi hafa þeir félagsmenn sem skuldlausir eru við félagið. Félagsmaður telst sá einstaklingur sem greitt hefur félagsgjald. Eindagi félagsgjalds er 31. desember hvers félagsárs.
Aðalfundur er æðsta vald félagsins og tekur þær ákvarðanir um starfssemi félagsins sem þörf er á. Til hans skal boða skriflega eða með tölvupósti með minnst þriggja vikna fyrirvara. Allar lagabreytingar eða tillögur um að leggja félagið niður skulu hafa borist stjórn félagsins skriflega eða rafrænt með staðfestum hætti, minnst tveimur vikum fyrir fundinn og vera auglýstar af stjórn félagsins skriflega og/eða með tölvupósti til félagsmanna eigi síðar en viku fyrir fundinn.
- Skýrsla stjórnar og reikningar
- Lagabreytingar
- Kosningar í stjórn og embætti
- Önnur mál
5. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 5 mönnum. Skulu þeir kosnir á aðalfundi. Stjórn kýs sér formann og skiptir með sér verkum að öðru leyti. Formaður boðar stjórarmenn til stjórnarfunda. Úrslitum á stjórnarfundi ræður afl atkvæða, en séu þau jöfn, ræður atkvæði formanns.Stjórnin boðar til aðalfundar og aukaaðalfunda þess á milli ef þurfa þykir. Stjórnin undirbýr fundarmálefni, framkvæmir fundarályktanir og skipulegur og stjórnar starfsemi félagsins. Stjórnin hefur eftirlit með öllum framkvæmdum félagsins og hefur á höndum sér eftirlit með eignum þess, innheimtir félagsgjöld og sér um greiðslu á gjöldum félagsins. Stjórnin gætir í öllu hagsmuna félagsins og getur leitað aðstoðar landslaga og réttar í málefnum félagsins ef hennar er þörf.6. gr.Félagsmaður getur sætt brottreksri úr félaginu fyrir þessar sakir:
- Ef hann verður uppvís að því að spilla áliti félagsins innan þess eða utan.
- Ef hann verður uppvís að óviðunandi umgengni á fundum eða samkomum skv. umgengisreglum félagsins.
- Ef hann sýnir félaginu ítrekuð vanskil.
- Ef hann virðir ekki eða verður uppvís að því að hafa ekki virt 2. gr. þessara laga.
Nú ályktar stjórn að félagsmaður sé rækur úr félaginu. Skal stjórnin tilkynna það hlutaðeigandi skriflega. Sætti hlutaðeigandi sig ekki við úrskurð stjórnarinnar, getur hann skotið máli sínu til aukaaðalfundar eða aðalfundar.
7. gr
Úrsögn úr félaginu skulu vera skriflegar og sendar stjórn. Við brottför úr félaginu getur félagsmaður ekki gert tilkall til sjóða eða eigna félagsins.
8. gr.
Sérhver skuldlaus félagsmaður getur krafist þess skriflega til stjórnar félagsins, að hún boði til aukaaðalfundar. Stjórnin getur einnig boðað til aukaaðalfundar. Í skriflegri kröfu um aukaaðalfund skal tilgreina hvaða efni skuli taka á dagskrá. Stjórn skal halda aukaaðalfund innan tveggja mánaða frá því að krafa um aukaaðalfund var lögð fram og auglýsa hann skriflega og/eða með tölvupósti tveimur vikum fyrir fundinn. Rétt til setu og þátttöku í umræðum á aukaaðalfundi hafa allir skráðir félagsmenn, en atkvæðisrétt hafa eingöngu skuldlausir félagsmenn. Aukaaðalfundur getur samþykkt með einföldum meirihluta að boða til aðalfundar.9. gr.Aðalfundur hefur rétt til að leggja félagið niður. Sjóðir eða eignir félagsins munu við slit félagsins renna til annarra formlegra félaga eða hópa sem stunda almenna kynfræðslu, BDSM fræðslu eða til góðgerðarstarfssemi.
Samþykkt á aðalfundi BDSM á Íslandi
11.janúar 2001