BDSM er regnhlífahugtak sem í sinni víðustu skilgreiningu nær yfir nánast allt sem fólki getur hugnast, svo lengi sem það lýtur þremur grundvallarreglum BDSM: öruggt, meðvitað og samþykkt.
Algengast er þó að um sé að ræða einhverskonar þörf fyrir vel afmörkuð valdaskipti. Blæti og munalosti fléttast oft inn í og stundum er það eingöngu skynjunin sjálf sem fólk sækist eftir.
Undir regnhlífinni eru mörg ólík. Þau sem eru rekin áfram af forvitni, þau sem taka fullan þátt í lífstíl BDSM eða eru BDSM-hneigð og allt þar á milli.
Á þessari síðu má finna upplýsingar um félagið, vegvísinn okkar inn í BDSM-samfélagið á Íslandi og fleira.
- Við erum á Facebook.
- Einnig má finna okkur á FetLife sem BDSM_a_Islandi
- Þið getið sent okkur tölvupóst á [email protected]