BDSM á Íslandi boðar til aðalfundar laugardaginn 8. mars 2025 kl. 14:00 að Suðurgötu 3, 101 Reykjavík. Heimilt er að veita gildum félögum aðgengi að fundinum í gegnum fjarfundabúnað sbr. grein 5.1. í félagslögum.
Dagskrá aðalfundar:
- Kosning fundarstjóra og ritara
- Lögmæti aðalfundar staðfest
- Skýrsla stjórnar og reikningar
- Kosning formanns
- Kosning stjórnar
- Kosning varafulltrúa í stjórn
- Kosning í önnur embætti
a. Skoðunarmaður reikninga
b. Önnur embætti - Lagabreytingar
- Önnur mál
Við hvetjum félagsfólk til að bjóða sig fram til stjórnarsetu. Þetta árið verður kosið um formann til eins árs, þrjá stjórnarfulltrúa til tveggja ára, og varafulltrúa til eins árs.
Kjörnefnd hefur tekið ákvörðun um að framlengja framboðsfrest fram að kosningum á aðalfundi.
Lagabreytingatillögur þurfa að hafa borist stjórn félagsins skriflega eða rafrænt með staðfestum hætti minnst tveimur vikum fyrir aðalfund, samkvæmt samþykktum félagsins. Gildandi samþykktir félagsins má sjá hér
Áhugasöm geta skráð sig í félagið hér
Jafnframt minnum við á greiðslu félagsgjalda. Viðmiðunargjald félagsins er 5.000kr, félagsmenn skulu greiða að lágmarki 1.000kr til að teljast gildir félagar.
Félagsgjaldið má greiða inn á reikning félagsins 0515-26-004911, kt. 491199-2969.
Kær kveðja
Stjórnin