krambulerud býður sig fram í stöðu stjórnarmeðlimar en til vara til varamanns.
Ég gef aftur kost á mér sem stjórnarmeðlimur. Ég hef sinnt stjórnarstörfum síðan í fyrra og finnst ég enn eiga nóg eftir.
Ég hef verið í senunni með hléum í tuttugu ár en mjög virk síðan 2020. Ég legg áherslu á hlutleysi líkama, aðgengi og fjölbreytni fólks í kinki. Einnig er ég aktívisti fyrir réttindum hinsegin fólks og tel mig vera öruggan aðila fyrir þolendur ofbeldis.
Um mig: ég er hinsegin, fjölkær, kynsegin switch (sumir segja að ég geti aldrei ákveðið mig!).