Athugið að við náum ekki að senda út greiðsluseðla vegna ársins 2024 fyrir aðalfund á morgun. Við munum senda póst á eftir, laugardegi. Endilega notið samt skráningarformið og millifærið svo með skýringum eða borgið með reiðufé á fundinum.
Öll sem styðja meginreglur félagsins, eins og þær eru á heimasíðu okkar bdsm.is, er velkomið að ganga í félagið. Sendið okkur póst ef þið hafið einhverjar spurningar um félagsaðild.
Einfaldast er að fylla út formið og skrá kennitöluna og við sendum þér greiðsluseðil í heimabanka. Einnig er hægt að millifæra (sjá fyrir neðan) eða greiða í reiðufé á einhverjum viðburði félagsins.
Viltu frekar greiða öðruvísi?
Hægt er að greiða í reiðufé á viðburðum félagsins.
Einnig er hægt að greiða inn á reikning félagsins þá upphæð sem þið kjósið. Viðmiðunargjald er 5000 krónur og lágmarksgjald 500 kr. Sendið endilega kvittun frá banka á [email protected] með skýringu „árgjald“. Sendið svo póst á [email protected] með þeim upplýsingum um ykkur sem þið viljið að við höfum um ykkur í félagaskrá.
Reikningur 0515-26-004911
Kennitala 491199-2969
Af hverju félagsgjöld?
Félagið er áhugamannafélag og er ekki rekið í ágóðaskyni. Félagsgjöld eru til að greiða beinan kostnað við rekstur félagsins. Stærsti kostnaðurinn er kostnaður við húsnæði fyrir námskeið og fundi og svo efniskostnaður fyrir Reykjavík Pride. Farið er yfir ársskýrslu félagsins á aðalfundi að vori.
Styrkja félagið
Hægt er að gerast styrktarmeðlimur félagsins með því að leggja styrkupphæðina inn á bankareikning félagsins:
0515-26-004911 kt. 491199-2969
Þá væri ágætt að viðkomandi léti félagið vita að hann hafi greitt því styrk svo við vitum frá hverjum (hvaða netfangi) viðkomandi greiðsla er.