Þeir sem ötult fylgjast með síðu þessari hafa e.t.v. tekið eftir því að flokkurinn Sögur hefur verið fjarlægður af síðunni.
Ástæðan fyrir þessu er sú að á nýlegum stjórnarfundi bráðabrigðastjórnar BDSM á Íslandi var sú stefna mörkuð að félagið ætti fyrst og fremst að þjóna fræðslu- og kynningarhlutverki fyrir iðkendur sem og almenning. Þær erótísku sögur sem við höfum á höndum okkar þjóna því hlutverki ekki sérstaklega vel og hafa þær því verið fjarlægðar af vef þessum, í þeim tilgangi að sérhæfa hann sem upplýsingagátt.
Sögurnar eru þó ekki komnar í glatkistuna, enda mörg framlögin góð og engin ástæða til að halda þeim frá þeim sem þeirra vilja njóta. Nálgast má sögurnar á Fetlife-prófíl félagsins, bdsm_a_islandi. Tengil á Fetlife má finna í stikunni til hægri, undir „Erlendir vefir“.