Ný stjórn BDSM á Íslandi var kosin á aðalfundi laugardaginn 28. mars síðastliðinn. Stjórn hefur nú komið saman og sett sér stefnu fyrir starfsárið 2026-2027, eða fram að aðalfundi í mars 2027. Á þessu tímabili ætlar stjórn að leggja áherslu á eftirfarandi atriði:
- BDSM á Íslandi heldur reglulega viðburði.
- Markmið stjórnar er að halda viðburði mánaðarlega og tilkynna þá með góðum fyrirvara. Við stefnum á að koma á fót vel skilgreindri og reglulegri viðburðadagskrá.
- Endurbætur á vefsíðu félagsins.
- Stjórn stefnir á að uppfæra heimasíðu félagsins með því markmiði að gera hana hagnýtari og notendavænni.
- Öryggisnefnd.
- Stjórn kannar fýsileikan á að taka þátt í að stofna öryggisnefnd til að deila upplýsingum mStjórn stefnir á að uppfæra heimasíðu félagsins með því markmiði að gera hana hagnýtari og notendavænni. eðal hagsmunaaðila, skýra boðleiði í ágreiningsmálum og annars efla öryggi innan samfélagsins, að því marki sem þykir mögulegt í ljósi eðlilegra takmarka sjálfboðasamtaka
- Þátttaka í samfélaginu
- Bæta tengsl við BDSM samfélagið. Við viljum m.a. ná til fleira fólks innan samfélagsins með því að útbúa einblöðung um félagið og starfsemi þess sem viðburðahaldarar geta dreift og haft aðgengilega á sínum viðburðum.
- Auka vitund meðal almennings. Við leggjum áherslu á virkni á samfélagsmiðlum sem við nýtum okkur í dag, Facebook og Fetlife. Stjórn stefnir á að hefja vinnu á gerð upplýsinga bæklings sem hægt er að dreifa út í samfélagið og birta á heimasíðu félagsins ásamt því að skoða möguleikann á að uppfæra þær upplýsingar sem nú þegar eru til staðar á íslenskum vefsíðum.
- Ná til annarra hinsegin hópa. Stjórn mun vinna að því að efla tengsl og samvinnu við önnur hinsegin samtök á Ísland, m.a. með því að athuga fýsileikann á því að skipuleggja sameiginlega viðburði.