Bdsm.is er lifandi. Já, þú lest rétt, samfélagið hefur endurnýjað sig með nýju blóði og er farið aftur af stað.
—-
Munch eru komin að stað bæði á Akureyri og í Reykjavík. En „Munch“ er einfaldlega hittingur á kaffihúsi. Venjulegur klæðnaður, umræður um hvað sem fólki dettur í hug að ræða. Munchin sjálf eru í raun ótengd bdsm.is en öllum er velkomið að mæta.
Reykjavík: Núverandi staðsetning er Gay 46 á Hverfisgötu 46, 101 Reykjavík. Fyrsta miðvikudag hvers mánaðar og mánudag í þriðju viku hvers mánaðar.
Akureyri/Norðurland: Það er munch haldið fyrsta mánudag hvers mánaðar á efri hæðinni á Café Amor. Munchið byrjar Klukkan 20:00. Akureyrar munchið er ekki jafn reglulegt þó, hægt er að senda skeiti á mig hér inni og ég get bent ykkur á heimasíðu þar sem hægt er að fá nákvæmari dagssetningar ef áhugi er.
—–
Verið er að vinna í því að halda aðalfund bdsm.is á nýjann leik. Markmiðið er að kjósa nýja stjórn og koma félaginu aftur í gang.
Einnig er búið að ákveða að halda bdsm ball með fetish theme í Ágúst/haust. Dagssetning er þó ekki ákveðin enn. Nánari upplýsingar um bæði aðalfundinn og ballið koma síðar, þá meðal annars hingað inn.
kv samvimes
Glæsilegt!